Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar
January 06 2023 - 9:14AM
Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd Sjóvár-Almennra trygginga hf. auglýsir
eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Sjóvár fyrir
aðalfund félagsins sem haldinn verður föstudaginn 10. mars
2023.
Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem
hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til
loka föstudagsins 27. janúar 2023. Tilkynning um
framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á
vefsvæði félagsins á
slóðinni https://www.sjova.is/json/Eydublod/EYB-0208/frambod-stjornarsetu.pdf og
skal skila á netfangið tilnefningarnefnd@sjova.is.
Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til
stjórnarsetu verður kynnt samhliða aðalfundarboði sem birt
verður skemmst þremur vikum fyrir aðalfund.
Almennur framboðsfrestur til stjórnar er fimm
sólarhringum fyrir aðalfund. Starfsemi
tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda
til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki,
en nefndin ábyrgist ekki að lagt verði mat á framboð sem berast
þeim eftir 27. janúar 2023. Nefndin áskilur sér þó rétt til að
endurskoða tillögu þá sem birt verður samhliða
aðalfundarboði og verður endurskoðuð tillaga þá birt
a.m.k. tveimur dögum fyrir aðalfund.
Sjova-almennar Trygginga... (LSE:0QS8)
Historical Stock Chart
From Nov 2024 to Dec 2024
Sjova-almennar Trygginga... (LSE:0QS8)
Historical Stock Chart
From Dec 2023 to Dec 2024